Úr umferðinni

Þegar ég var á leiðinni upp Ártúnsbrekkuna í morgun leit ég til hliðar
og þar var kona á splunkunýjum BMW. Hún var á svona 120 km hraða með
andlitið upp í baksýnisspeglinum og var á fullu að sminka sig með
meikup-græjurnar í sitt hvorri hendi og annan olbogan á stýrinu.
Ég leit fram á veginn eitt augnablik og næst þegar ég leit á hana var
bíllinn hennar á leiðinni yfir á mína akrein og samt hélt hún áfram að
mála sig eins og ekkert sjálfsagðara.
Mér brá svo mikið að ég missti ferðarakvélina mína á roastbeefsamlokuna
sem ég hélt á í vinstri hendinni. Í panikkinu við að afstýra árekstri við
konuna og ná stjórn á bílnum sem ég stýrði með hnjánum, datt
gemsinn minn úr hálsgrófinni og ofan í kaffibollann sem ég var með á
milli fótanna.
Það varð til þess að brennheitt kaffið sullaðist á Orminn Langa og
tvíburana tvo. Ég rak upp öskur og missti við það sígarettuna úr

munninum og brenndi hún stórt gat á sparijakkan og ég missti af
mikilvægu símtali!

 Hvað er að þessum helv. kellingum?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Góður Tommi.

Helgi Þór Gunnarsson, 13.8.2007 kl. 20:10

2 Smámynd: Grétar Ómarsson

Hún var bara að mála sig á 120km hraða, en varst þú að raka þig með kaffi og sígó í kjaftinum og  á meðan þú talaðir í gemmsann á 100km hraða  

Grétar Ómarsson, 15.8.2007 kl. 00:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband