Færsluflokkur: Bloggar
19.6.2008 | 13:29
Enn halda þeir áfram
Það er ekki einleikið hvernig þeir komast upp með svona hegðum Real menn, og FIFA hundsar allar kvartanir frá Utd, ég er ansi hræddur um að ef þetta væru ensku liðin sem færu svona fram þá væri búið að sekta þau, og ef ekki, grípa til harðari refsinga. Fyrir utan hvað þetta fjölmiðlafár í miðri Evrópukeppni getur haft áhrif á leikmanninn og jafnvel allt Portúgalska liðið.
Real bíður viðbragða Ronaldos | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.6.2008 | 08:48
Hver ræður ?
Það virðist svolítið gleymast í þessari umræðu um Ronaldo að hann ræður sér ekki sjálfur, það hefur marg oft komið fram að Utd vill ekki selja hann og félagið er með 5 ára undirritaðan samning af leikmanninum, og eins og Glazer fjölskyldan segir þá verður hann frekar látinn sitja í stúkunni frekar en að selja hann.
EN ef satt reynist það sem er búið að skrifa um Ronaldo í blöðunum þá er drengurinn ekki með hjartað hjá félaginu heldur í bankanum og þá á að selja svona karaktera umsvifalaust, það hefur ekki verið stefna hjá Utd að vera með óánægða leikmenn innann sinna herbúða og engin leikmaður verður stærri en klúbburinn.
Ronaldo gæti fengið 47 milljónir kr. á viku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.6.2008 | 11:58
Þjóðhátíðarlag 2008
Jæja þá er komið að því, Þjóðhátíðarlag Vestmannaeyja 2008 er að koma út og hefur farið eins og eldur í sinu á netinu síðustu sólarhringa. Ég er búinn að hlusta á lagið og er bara nokkuð sáttur, en var það ekki eftir fyrstu hlustun en það er eins og oft áður maður þarf að hlusta oftar ein einu sinni til að meðtaka lagið. Það er Hreimur Heimisson úr Landi og sonum sem á heiðurinn af þessu lagi, en drengurinn sá kann þetta frá A til Ö að gera góð Þjóðhátíðarlög eins og t.d Lífið er yndislegt sem er eitt albesta Þjóðhátíðarlag seinni ára, en persónulega finnst mér Oddgeirslögin standa upp úr.
Ekki eru allir sáttir með framkvæmd þessa gjörnings að fá verktaka í málið til að semja lagið og er ég einn af þeim sem vill halda í það að hafa samkeppni um lagið til að stuðla að grósku í tónlistarlífi Eyjamanna, og get ég að mörgu leyti tekið undir orð Elíasar Bjarnhéðinssonar, en hann skrifaði smá pistil um þetta sem kom í Fréttum á fimmtudaginn.
En engu að síður held ég að þetta lag eigi eftir að gera það gott í Dalnum og víða.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.5.2008 | 13:36
10 ára afmæli YEHÍ
Jæja gott fólk þá er maður mættur á Hótel Hérað á Egilstöðum og tilefnið? jú 10 ára afmæli YEHÍ eða félag yfirmanna í eldhúsum heilbrigðisstofnanna á Íslandi, ansi nettur titill ekki satt? Hér munum við hjónin dvelja fram á sunnudag ásam góðu fóki og erum við sex úr Eyjum mætt á þingið. Það verður margt gert sér til skemmtunar og fróðleiks á þessu þingi sem síðan endar með veglegu lokahófi á laugardagskvöldið. Við höldum úti heimasíðu www.yehi.is og þar má sjá nánari upplýsingar um dagská þingsins, en meira síðar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2008 | 13:20
Gjöf til samfélagsins
Eins og ég hef sagt áður þá er ég félagi í Kiwanisklúbbnum Helgafelli hér í Vestmannaeyjum og er ég mjög stoltur af því enda klúbburinn fjölmennur og öflugur. Okkar nýjasta verkefni var að gefa til samfélagsins umferðarljós, undir kjörorðinu Börnin fyrst og fremst, en ljósin eru sett upp á fjölförum gatnamótum sem er á aðalgönguleið barna til og frá skóla að Íþróttamiðstöðinni. Upphaflega átti þetta bara að vera gangbrautarljós, en fyrst þetta er á gatnamótum leyfa reglur það ekki og því varð að setja upp slík ljós sem hér um ræðir, en nánar má sjá allt um þetta á heimasíðu klúbbsins. www.kiwanis.is/helgafell
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.3.2008 | 08:19
Binni og Rambo
Bin Laden hótar Evrópu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.3.2008 | 13:49
Rúnar Júlíusson heiðraður
Til hamingju Rúnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.2.2008 | 09:51
Dýpstu neðansjávargöng í heimi
Dýpstu neðansjávarjarðgöng í heimi kostuðu 12.1 milljarða
22.000 Norðmenn hafa nú fengið dýpstu göng í heimi sem vegtengingu við fastalandið. Eyjarnar Hareid, Heröy, Sande og Ulstein komust í svokallaða Eiksundstengingu þann 23.febrúar síðastliðinn.
Í fimm ár hefur vegagerð norska ríkisins verið að grafa göng undir Vartdalsfjörðinn. Samtals er þessi samgöngubót um 15 km. Tengingin er á milli vegarins E 39 við Volda, Eiksunds og Hareidlands. Kostnaðurinn er nú kominn í 970 milljónir nk. Eða sem svarar 44.000 nk á íbúa á svæðinu sem koma til með að njóta þessa nýja mannvirkis. Þó koma einhverjir peningar til baka í veggjöldum. Dýrasti hluti gangnanna er sá hluti sem er neðansjávar eða 7.765 m. Göngin eru 287 m fyrir neðan sjávarmál.
Miðað við þær tölur sem að Vegagerðinn gefur sér í kostnað á jarðgöngum milli lands og eyja þá er greinilegt að Norðmenn hafa fundið aðra leið en íslenskir embættismenn.
Frétt um þessi jarðgöng má sjá hér: http://www.nettavisen.no/innenriks/article1609039.ece
Þessi frétt er tekin af www.eyjar.net
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.2.2008 | 10:21
Áföll í kippum
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.2.2008 | 08:35
Spennandi kosningar framundan.
Obama sigraði í Maine | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)